Vetrarakstur
Harkaleg veðurskilyrði á veturna leiða til meira slits og annarra vandamála. Til að lágmarka vandamál í vetrarakstri ættir þú að fylgja þessum uppástungum:
Snjór eða ísing
Til að aka ökutækinu þínu í djúpum snjó kann að vera nauðsynlegt að nota snjóhjólbarða og setja á snjókeðjur.
Ef þörf er á snjóhjólbörðum er nauðsynlegt að velja hjólbarða af stærð og tegund sem er jafngild hjólbörðunum sem upphaflega voru uppsettir. Misbrestur á að gera svo kann að hafa slæm áhrif á öryggi og meðhöndlun ökutækisins. Ennfremur eru hraðakstur, snögg hröðun, skyndileg notkun hemla og skarpar beygjur hugsanlega mjög hættulegar aðgerðir.
Meðan á hraðaminnkun stendur skal nota hemlun ökutækisins alveg til fulls. Skyndileg beiting hemla á snævi þöktum eða ísuðum vegum kann að valda skriki. Þú þarft að halda nægilegri fjarlægð á milli ökutækis þíns og þess næsta fyrir framan. Beittu einnig hemlinum varlega. Athugaðu að uppsetning snjókeðja á hjólbarðana veitir meiri aksturskraft, en kemur ekki í veg fyrir hliðarskrik.
Snjókeðjur eru ekki löglegar í öllum löndum. Athugaðu landslög áður en þú setur á snjókeðjur.
Sumarhjólbarðar
-
Sumarhjólbarðar eru notaðir til að hámarka akstursframmistöðu á þurrum vegum.
-
Ef hitastigið er undir 7°C (45 °F), eða þú ekur á snævi þöktum eða ísuðum vegum missa sumarhjólbarðarnir hemlunarframmistöðu sína og grip, þar sem grip hjólbarðanna veikist verulega.
-
Ef hitastigið er undir 7°C (45 °F), eða þú ekur á snævi þöktum eða ísuðum vegum skaltu setja á snjóhjólbarða eða heilsárshjólbarða af sömu stærð og staðlaða hjólbarða ökutækisins vegna öruggs aksturs. Bæði snjó- og heilsárshjólbarðar eru með M+S merkingar.
-
Þegar þú notar M+S hjólbarðana skaltu nota hjólbarða með sama mynstri framleidda af sama framleiðanda vegna öruggs aksturs.
-
Þegar ekið er með M+S hjólbarða á lægri leyfilegum hámarkshraða en venjulegum hraða ökutækisins á sumarhjólbörðum skaltu gæta þess að fara ekki umfram þann hraða sem leyfilegur er fyrir M+S hjólbarða.
Snjóhjólbarðar
Ef þú setur snjóhjólbarða á ökutækið þitt skaltu gæta þess að þeir séu þverbandahjólbarðar af sömu stærð og burðarsviði og upprunalegu hjólbarðarnir. Settu snjóhjólbarða á öll fjögur hjólin til að halda jafnvægi í stjórn ökutækisins við öll veðurskilyrði. Hafðu í huga að gripið sem snjóhjólbarðar veita á þurrum vegum kann að vera minna en gripið sem hjólbarðarnir sem upphaflega voru settir upp á ökutækinu veita. Þú ættir að aka varlega, jafnvel þegar vegirnir eru auðir. Athugaðu hjá söluaðila hjólbarða varðandi ráðleggingar um hámarkshraða.
Settu ekki upp hjólbarða með nöglum án þess að athuga fyrst allar viðeigandi reglugerðir til að sjá mögulegar takmarkanir á notkun þeirra.
Snjóhjólbarðar ættu að vera jafngildir venjulegum hjólbörðum ökutækisins að stærð og gerð. Að öðrum kosti kann það að hafa slæm áhrif á öryggi og stjórnun ökutækisins þíns.
Snjókeðjur
![]() OOVGTL045001 |
Vegna þess að hliðar þverbandahjólbarða eru þynnri geta þær skemmst ef sumar gerðir snjókeðja eru settar á þá. Þess vegna er mælt með notkun snjóhjólbarða í stað snjókeðja. Ekki setja snjókeðjur á ökutæki búin álfelgum; snjókeðjur kunna að valda skemmdum á felgunum.
Skemmdir á ökutækinu þínu af völdum rangra snjókeðja falla ekki undir ábyrgð framleiðanda ökutækisins.
Þegar snjókeðjur eru notaðar skal festa þær við drifhjólin sem hér segir.
-
Framhjóladrifin ökutæki nota framhjólin sem aflgjafa. Þess vegna verður að setja snjókeðjur á hjólbarðana að framan.
-
Eftir að snjókeðjur hafa verið settar á skal aka hægt. Ef þú heyrir hávaða af völdum þess að keðjur snerta skrokkinn skaltu hægja á þar til hávaðinn hættir og fjarlægja keðjuna um leið og þú byrjar að aka á auðum vegum til að koma í veg fyrir skemmdir.
-
Keðjur af rangri stærð eða sem settar eru rangt á geta skemmt hemlaleiðslur ökutækisins, fjöðrun, skrokk og felgur. Þess vegna, þegar snjókeðjur eru settar á skal fylgja leiðbeiningum framleiðandans og setja þær á eins þétt og mögulegt er. Aktu hægt með keðjur á og haltu þig undir 30 km/klst. (20 mph) hraða.
-
Settu á snjókeðjur sem standast tæknistaðla hverrar hjólbarðastærðar til að koma í veg fyrir skemmdir á ökutækinu þínu.
-
Keðja fyrir tiltekna efnistegund (aðeins fyrir 18” eða 19” dekk)
-
-
Gakktu úr skugga um að snjókeðjurnar séu af réttri stærð og gerð fyrir hjólbarðana þína. Rangar snjókeðjur geta valdið skemmdum á skrokki ökutækisins og fjöðrun og ekki er víst að þær falli undir ábyrgð framleiðanda ökutækisins. Einnig geta tengikrókar snjókeðjanna skemmst við að snerta íhluti ökutækisins sem veldur því að snjókeðjur losna af hjólbarðanum.
-
Athugaðu alltaf að uppsettar keðjur sitji rétt eftir að hafa ekið um það bil 0,5-1 km (0.3-0.6 miles), til að tryggja örugga festingu. Hertu eða settu keðjurnar aftur á ef þær eru lausar.
