Snjóhjólbarðar

Þegar snjóhjólbarðar eru settir á ökutæki skal gæta þess að þeir séu af sömu stærð og þeir upprunalegu og að nota hjólbarða sem mælt er með í þessari handbók. Það getur valdið óeðlilegum hávaða í akstri ef notaðir eru aðrir hjólbarðar en þeir sem mælt er með. Hámarksþyngd sem hjólbarðar þola er mismunandi eftir ökutækjum, svo gættu þess að nota rétta stærð af hjólbörðum.Settu snjóhjólbarða á öll fjögur hjólin til að jafna út meðhöndlun ökutækisins við öll veðurskilyrði. Hafðu í huga að gripið sem snjóhjólbarðar veita á þurrum vegum kann að vera minna en hjólbarðanna sem ökutækið var upphaflega búið. Þú ættir að aka varlega, jafnvel þegar vegurinn er auður.Athugaðu hjá hjólbarðasalanum varðandi ráðleggingar um hámarkshraða.

※ Ráðlagðir hjólbarðar

185/65 R15

205/55 R17

Kumho

(WINTERCRAFT WP71)

Continental

(CONTI PREMIUM CONTACT5, WINTER CONTACT TS850P)

WARNING

Stærð snjóhjólbarða

Snjóhjólbarðar ættu að vera af jafngildri stærð og tegund og venjulegir hjólbarðar ökutækisins. Að öðrum kosti kann það að hafa óhagstæð áhrif á akstureiginleika ökutækisins.

Settu ekki neglda hjólbarða undir án þess að athuga fyrst staðbund- nar reglugerðir ríkis og bæja vegan mögulegra takmarkana á notkun þeirra.