Snjókeðjur

Þar sem hliðar þverbandahjólbarða eru þynnri kunna þeir að skem- mast ef sumar tegundir af snjókeðjum eru festar við þá. Þar af leiðandi er mælt með notkun snjóhjólbarða í stað snjókeðja. Ekki skal setja keðjur á ökutæki sem búin eru álfelgum; snjókeðjur kun- na að valda skemmdum á felgu- num. Ef það verður að nota snjókeðjur skal nota vírkeðjur sem eru innan við 12 mm (0,47 tommu) að þykkt. Skemmdir á ökutækinu þínu af völdum ran- grar notkunar snjókeðja falla ekki undir ábyrgð framleiðandans.
Settu snjókeðjur aðeins upp á hjól- börðunum að framan.

-
Gakktu úr skugga um að snjókeðjurnar séu af réttri stærð og tegund fyrir hjólbarðana þína. Rangar snjókeðjur geta valdið skemmdum á yfirbyggingu ökutækisins og fjöðrun og ekki er víst að þær falli undir ábyrgð framleiðanda ökutækisins. Einnig geta tengikrókar snjókeðjanna skemmst vegna snertingar við ökutækið sem veldur því að snjókeðjurnar losna frá hjólbarðanum. Gakktu úr skugga um að snjókeðjurnar séu af SAEflokki og “S”-vottaðar.
-
Athugaðu alltaf uppsetningu og rétta festingu keðja eftir að hafa ekið um það bil 0,5 til 1 km (0,3 til 0,6 mílur) til að tryggja örugga festingu. Hertu keðjurnar eða settu þær upp aftur ef þær eru lausar.
-
Jafnvel með viðeigandi keðju uppsetta skal ekki taka fulla beygju (snúa stýrinu til fulls til annarrar hliðar) þegar ökutækinu er ekið. (Ef þú ert að taka fulla beygju skaltu aka á hraða undir 10 km/klst.)
